Ef einhver var að hugsa um kjólinn fyrir jólin, þá getið þið gleymt því eins og skot – því þessir sælubitar eru forleikur að jólunum.
Sælubitar með Oreo
- 1 poki sykurpúðar
- 3 msk. saltað smjör
- 2,5-3 bollar Rice Krispies
- 24 oreo kex, brotið niður
Aðferð:
- Setjið sykurpúða og smjör saman í stóran pott á lágum hita og hrærið í þar til sykurpúðarnir hafa bráðnað.
- Takið blönduna af hitanum og bætið Rice Krispies saman við.
- Bætið brotnu oreo kexinu varlega saman við.
- Pressið blöndunni niður í passlegt fat (sirka 20x20 cm).
- Látið standa í 1 klukkustund og skerið þá niður og berið fram.