Hér uppskrift að brauði, stútfullt af kærleika, svo gott er það. Þetta brauð er hollt og umfram allt alveg svakalega mjúkt og bragðgott. Þessa brauðuppskrift tekur þó um 2-3 daga að baka, en það getur oft komið ser vel að baka í skömmtum.
Dúnmjúkt og nýbakað (3-4 brauð)
Rúgblandan:
- 150 g rúgur
- 200 g kalt vatn
- 30 g salt
Deig:
- Rúgblandan hér fyrir ofan.
- 80 g sólblómakjarnar
- 50 g hörfræ
- 80 g malað heilhveiti
- 1,3 kg fínmalað spelthveiti
- 15-20 g ger
- 20 g sykur
- 400 g súrmjólk við stofuhita
- 500-600 g vatn
Aðerð:
Dagur 1:
- Hrærið öll hráenin saman í rúgblönduna og geymið í kæli yfir nótt.
Dagur 2:
- Hrærið öll hráefnin saman ásamt rúgblöndunni og hnoðið vel saman.
- Látið hvíla þar til deigið hefur tvöfaldað sig, gjarnan yfir nótt.
Dagur 2 eða 3:
- Formið deigið í 2-3 kúlur (eða eins og brauð).
- Látið hefast þar til deigið hefur tvöfaldað sig.
- Skerið rákir í deigið og bakið við 230° í sirka 30-35 mínútur.