Hér er parmaskinka að spila stórt hlutverk í ljúffengum fiskrétti sem tekur enga stund í framreið. Fullkomin máltíð á annasömum degi.
Ofnbakaður þorskur með lúxusskinku
- 600 g þorskur
- 4 parmaskinkusneiðar
- 400 g kúrbítur
- 300 g litlir tómatar
- 1 stór rauðlaukur
- 2 msk ólífuolía
- 1 tsk þurrkað timían
- 1 tsk þurrkað oreganó
- Salt og pipar
- 1 dl grænmetiskraftur
Annað:
Aðferð:
- Hitið ofninn á 200°C.
- Skerið kúrbítinn í þykkar skífur og svo aftur í fjóra hluta. Skerið rauðlaukinn niður og veltið grænmetinu upp úr ólífuolíu og kryddið með timían, oreganó, salti og pipar.
- Dreifið grænmetinu í eldfast mót og hellið kraftinum í botninn á fatinu. Setjið í ofn í 10 mínútur.
- Skiptið þorskinum í 4 hluta og kryddið með salti og pipar. Rúllið hverju þorskstykki inn í parmaskinku.
- Takið eldfasta mótið úr ofninum og leggið fiskinn ofan á grænmetið. Setjið aftur inn í ofn í aðrar 15 mínútur þar til skinkan er orðin stökk og fiskurinn tilbúinn.
- Berið fram með pasta og dreifið steinselju yfir fiskinn og grænmetið.