Ilmurinn af brenndum möndlum kallar á jólin og hér eru þær í glamúr útgáfu. Brenndar möndlur eru frábær vinagjöf í glerkrukku með slaufu og einni grenigrein um sig miðja.
Bronslitaðar og brenndar möndlur
- 200 g möndlur
- 100 g sykur
- 1 dl vatn
- Bronslitað matarduft/glimmer
Aðferð:
- Setjið möndlur, sykur og vatn á pönnu á meðalhita.
- Þegar vatnið hefur gufað upp og sykurinn leysts upp, lækkið þá aðeins niður í hitanum á meðan þú hrærir jafnt og þétt í möndlunum. Þær eru tilbúnar þegar þær eru orðnar glansandi og sykurinn eins og karamella.
- Setjið í poka ásamt bronsduftinu og hristið saman.
- Setjið í glerkrukku eða annað sem heldur loftinu úti.