Jamie Oliver er enginn nýgræðingur í eldhúsinu og hér með pastarétt sem setur bragðlaukana á hliðina. Hér mælir Jamie með að setja smá ferskt chili út í sósuna ef þú vilt hafa hana aðeins sterka.
Pastaréttur að hætti Jamie Oliver
- 1 butternut squash, hýðið tekið af, kjarninn fjarlægður og skorinn niður í bita.
- 2 hvítlauksrif, marin
- 250 g fersk basilika, söxuð smátt
- 400 g litlir tómatar skornir í sneiðar
- Sjávarsalt
- 500 g penne pasta
- Svartur pipar
- 3 msk ricotta ostur
- 750 g grænmetiskraftur
- 150 g mozzarella kúla
- Handfylli nýrifinn ferskur parmesan ostur
- 2 sage greinar
Aðferð:
- Hitið ofninn á 200°C. Raðið butternut squashinu á bökunarplötu og dreypið ólífuolíu yfir. Hitið í ofni í 15 mínútur þar til mjúkt.
- Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið hvítlauk og basilikuna í nokkrar mínútur. Bætið við tómötum og því næst ristaða butternut squash-inum og látið suðuna koma upp, lækkið þá undir hitanum og látið malla í 10 mínútur.
- Sjóðið pastað í potti en ekki allan suðutímann sem mælst er með. Hellið vatninu af og setjið pastað út á pönnuna.
- Setjið basilikuna út á pönnuna og saltið og piprið. Hrærið ricotta ostinum saman við og kraftinum og leyfið suðunni að koma upp.
- Smyrjið eldfast mót og hellið blöndunni yfir í mótið. Rífið mozzarella kúluna yfir og toppið með parmesan. Nuddið sage laufin upp úr ólífuolíu og setjjið á toppinn.
- Bakið í 15 mínútur þar til gyllt á lit og berið fram með góðu salati.