Í desembermánuði er gott að geta gripið í eina klassíska og góða uppskrift sem allir í fjölskyldunni elska — kjötbollur í alveg dásamlegri tómatsósu.
Uppáhaldshversdagsmatur fjölskyldunnar
- 500 g nautahakk
- Salt og pipar
- 2 stk. oreganó
- 2 tsk. rósmarín
- 1 msk. gróft sinnep
Tómatsósa:
- 2 rauðlaukar
- 4 stór hvítlauksrif
- 1 msk. ólífuolía
- 2 rauðar paprikur
- 2 dósir hakkaðir tómatar
- 2 tsk. chilikrydd
- 1 tsk. oreganó
- Salt og pipar
Aðferð:
- Blandið saman nautahakki, salti, pipar, oreganó, rósmarín og sinnepi. Mótið í litlar bollur og steikið upp úr ólífuolíu á heitri pönnu þar til gylltar.
- Saxið lauk og hvítlauk og steikið á annarri pönnu. Skerið paprikuna í strimla og bætið þeim saman við hökkuðu tómatana, chili, oreganó, salt og pipar. Látið malla í 10 mínútur og setjið kjötbollurnar út í tómatsósuna og smakkið til.
- Berið fram með fersku oreganó eða basilikum, grófu brauði eða jafnvel pasta og rífið parmesan-ost yfir.