Litlir sveppabitar eru algjört lostæti. Hér fylltir með spínati, skinku og pestó.
mbl.is/Alt.dk_Tia Borgsmidt
Þeir sem elska að gera vel við sig í mat og drykk ættu að líta nánar á þessa smábita – fyllta sveppi með parmaskinku og pestó.
Sveppameðlæti sælkerans (20 stk.)
- 20 sveppir
- 2 msk. ólífuolía
- 10 g parmaskinka
- 2 msk. ólífuolía
- 100 g ferskt spínat
- 1 krukka af papiíkupestó eða öðru pestói
- salt og pipar
Aðferð:
- Hreinsið sveppina og takið stilkinn úr þeim. Leggið á bökunarpappír á bökunarplötu og dreypið ólífuolíu yfir. Saltið og piprið.
- Leggið parmaskinkuna á bökunarpappírinn og penslið með ólífuolíu. Setjið plötuna með skinkunni og sveppunum inn í ofn við 200°C í 12 mínútur. Takið plötuna úr ofninum og leggið sveppina á disk.
- Sjóðið spínatið í potti með 1 dl af vatni, undir loki, þannig að það falli saman. Hellið vatninu af.
- Setjið smá spínat og pestó á alla sveppina og leggið stökka parmaskinku yfir hvern og einn svepp.
- Kryddið með salti og pipar og berið fram.