Kjúklingaréttur í sinni allra bestu mynd er hér á borðunum – kryddaður með nýkreistum sítrónusafa og dilli. Þú eyðir litlum 30 mínútum í að elda og ekki mínútu lengur en það.
Himneskur kjúklingaréttur á hálftíma
- 700 g kjúklingalæri frá Ali, beinlaus
- sjávarsalt og pipar — við notum Norðursalt
- 5½ msk hveiti
- 1 msk. repjuolía
- 1 msk. ósaltað smjör
- 1 bolli kjúklingakraftur
- 2 msk. nýkreistur sítrónusafi
- 2 msk. ferskt dill, saxað
Aðferð:
- Kryddið kjúklinginn með salti og pipar og veltið honum upp úr 4 msk. af hveiti.
- Hitið olíuna og smjörið á pönnu.
- Steikið kjúklinginn á pönnunni í 4-5 mínútur á hvorri hlið, þar til gylltur og gegnumsteiktur. Setjið kjúklinginn til hliðar á disk og lækkið í meðalhita undir pönnunni.
- Pískið restina af hveitinu (1½ msk) í sirka eina mínútu á pönnunni. Bætið þá kjúklingakrafti og sítrónusafa saman við og leyfið suðunni að koma upp – hrærið jafnt og þétt í á meðan. Sósan ætti að þykkna eftir u.þ.b. þrjár mínútur. Bætið þá dillinu saman við og saltið og piprið.
- Setjið kjúklinginn aftur á pönnuna og berið strax fram.
Uppskrift frá: Damn Delicious®