Þessi snúðauppskrift er geggjuð! Og það besta er að þú getur preppað hana daginn áður og skellt inn í ofn þegar hentar daginn eftir. Hér er í raun um kanilsnúðaköku að ræða með fyllingu sem mun slá í gegn.
Eina snúðauppskriftin sem þú þarft að kunna
- 270 ml mjólk
- 10 g ger
- 40 g sykur
- 2 egg
- 140 g smjör
- ½ tsk. salt
- 650 g hveiti
- 1 pískað egg til að pensla
Fylling:
- 150 g smjör, mjúkt
- 75 g sykur
- 75 g púðursykur
- 3 msk. kanill
Aðferð:
- Hitið mjólkina og bætið sykri og geri saman við. Hrærið saman.
- Bræðið smjörið og látið kólna örlítið. Bætið eggjum saman við og því næst smjörinu á meðan hrært er í. Því næst kemur salt og hveitið út í, smátt og smátt. Þegar allt hveitið er komið út í, látið þá vélina hnoða áfram í smá tíma.
- Rúllið deiginu út í ferhyrning á hveitilagt borð. Smyrjið jöfnu lagi af kreminu ofan á. Rúllið deiginu upp í langa pylsu og setjið inn í frysti í 15 mínútur. Ef deigið virkar mjög lint í sér er fínt að skera það til helminga og setja inn í frysti.
- Blandið öllum hráefnum saman í fyllinguna.
- Skerið því næst rúlluna í 22-24 snúða og raðið þeim í smurt smelluform (24 cm) og tvö minni eldföst mót eða 1 stærra. Setjið plastfilmu yfir formin og inn í ísskáp yfir nótt.
Daginn eftir:
- Takið snúðana úr kæli og látið standa á borði í 1,5-2,5 tíma.
- Hitið ofninn í 190°C á blæstri.
- Penslið snúðana með eggi og bakið í ofni í 30-35 mínútur þar til gylltir á lit.
- Berið fram nýbakað og þá gjarnan með glassúr á toppnum.