Þetta er ekki fyrsta né síðasta skiptið sem við munum sjá þessa súpu á borðinu – svo gómsæt er hún. Sveppasúpa í allri sinni mynd með ristuðu ostabrauði sem mettar fjóra svanga maga.
Ilmandi sveppasúpa og ostabrauð (fyrir 4)
- 500-600 g blandaðir sveppir
- 2 msk. smjör
- 2 laukar
- 3 stór hvítlauksrif
- 1,5 dl hvítvín
- 1 l grænmetiskraftur
- 1 tsk. timían
- 1-2 dl rjómi
- Salt og pipar
- ½ baguette
- 2 handfylli rifinn ostur, t.d. gruyére
- Ferskar jurtir til skrauts
Aðferð:
- Skerið sveppina í minni bita og brúnið þá í helmingnum af smjörinu á heitri pönnu.
- Saxið lauk og hvitlauk og steikið þá upp úr restinni af smjörinu í potti. Hellið hvítvíninu saman við og látið vínið sjóða niður.
- Bætið þá næstum öllum sveppunum út í pottinn ásamt kraftinum og timían og leyfið suðunni að koma upp. Látið malla í 15 mínútur.
- Setjið rjómann saman við og smakkið til með salti og pipar.
- Skerið brauðið í skífur og stráið rifnum osti yfir. Ristið brauðið í ofni við 220°C þar til stökkt og osturinn er bráðnaður.
- Setjið restina af sveppunum ofan á toppinn á súpunni og skreytið með ferskum jurtum.
- Berið súpuna fram með ristuðu ostabrauðinu.
Uppskrift: Nadia Mathiasen