Himneskt hafrasnakk með súkkulaði og banana! Svona smákökur eru fullkomið millimál þegar okkur langar í eitthvað sætt en erum að reyna að halda aftur af okkur.
Hafrasnakk með súkkulaði
- 1 banani, þroskaður
- 1 msk. hunang
- 2 msk. hnetusmjör
- 1 msk. kókosolía, fljótandi
- ½ tsk. vanillusykur
- Salt á hnífsoddi (við notum Norðursalt)
- 2 dl haframjöl
- 100 g dökkt súkkulaði, saxað
Aðferð:
- Hitið ofninn á 175°C á blæstri.
- Maukið bananann saman við hunang, hnetusmjör, kókosolíu, vanillu og salt. Blandið haframjölinu út í þar til allt er komið vel saman og er pínu klístrað. Setjið súkkulaðið út í.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og mótið 8 jafnstórar kúlur úr deiginu. Ýtið létt á hverja kúlu og bakið í 15 mínútur þar til gylltar og stökkar.
- Látið kólna og berið fram.
Uppskrift: Frederikkke Wærens
mbl.is/Frederikkewærens.dk