Við bjóðum þessa dásamlegu uppskrift að hversdagsmat kærlega velkomna á borðið. Spaghettí carbonara eins og þú færð á Ítalíu og getur svo sannarlega ekki klikkað.
Fínasta uppskrift að spaghettí carbonara
- 250 g ferskt pasta (eða þurrt)
- 125 g beikon
- 250 g ferskt spínat
- 2-3 egg
- 2-3 msk. mjólk eða rjómi
- 50 g parmesan
- Salt og pipar
Aðferð:
- Steikið beikonið stökkt á pönnu og leyfið fitunni að leka af á eldhúsrúllu.
- Pískið egg saman við mjólk eða rjóma og rifinn parmesan.
- Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum. Setjið spínatið út í vatnið síðustu mínútuna af suðutímanum. Hellið síðan vatninu af.
- Með pastað og spínatið enn þá í pottinum, bætið söxuðu beikoni saman við og eggjablöndunni. Smakkið til með salti og pipar.
- Berið strax fram með extra parmesan og góðu brauði.
Uppskrift: Hendes Verden