Hér er einn af þessum réttum sem bragðast eins og fínasta veitingastað, en er sáraeinfaldur í framreiðslu og gælir við bragðlaukana. Kjúklingabringur steiktar á pönnu og baðaðar upp úr rjóma með sólþurrkuðum tómötum og spínati.
Toscanadraumur með rjóma
- 700 g kjúklingabringur frá Ali
- 2 msk. ólífuolía
- 1 bolli rjómi
- ½ bolli kjúklingakraftur
- 1 tsk. hvítlaukssalt
- 1 tsk. ítalskt krydd
- ½ bolli parmesan-ostur
- 1 bolli spínat
- ½ bolli sólþurrkaðir tómatar
Aðferð:
- Setjið ólífuolíu á pönnu og steikið kjúklinginn á meðalhita í 3-5 mínútur á hvorri hlið eða þar til eldaður. Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið á disk.
- Setjið rjómann á pönnuna ásamt kjúklingakrafti, hvítlaukssalti og parmesan. Pískið saman á meðalhita þar til sósan byrjar að þykkna.
- Bætið spínati saman við og sólþurrkuðu tómötunum og látið malla þar til spínatið hefur fallið saman.
- Setjið kjúklinginn aftur út á pönnuna og berið fram með pasta eða góðu brauði.
Uppskrift: Alyssa Rivers