Mjúkt pasta og stökkur brauðrasp er geggjað kombó! Hér færðu frábæran pastarétt sem nærir líkama og sál – nákvæmlega það sem við þurfum á þessum janúardögum.
Rjómapasta með stökku raspi (fyrir 4)
- Brokkolíhaus, skorinn í litla bita
- Ólífuolía
- 1 stórt hvítlauksrif, marið
- 1 rauður chili
- Kosher-salt og pipar
- Tagliatelle
- ¼ bolli panko
- 1 msk. raspaður sítrónubörkur
- 3 msk. nýkreistur sítrónusafi
- ¼ bolli sýrður rjómi
Aðferð:
- Hitið ofninn á 220°C og setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Veltið brokkolí upp úr 2 msk. af ólífuolíu, hvítlauk, hálfum chili og ½ tsk af salti. Setjið á bökunarplötuna og ristið í ofni í 15 mínútur.
- Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum. Geymið ¾ bolla af pastavatninu til hliðar og hellið restinni af.
- Blandið saman í skál, panko, 1 msk. af ólífuolíu, helmingi af chili og raspaða sítrónuberkinum.
- Búið til smá pláss á bökunarplötunni hjá brokkolíinu og dreifið panko-blöndunni þar á. Ristið í 5-6 mínútur til viðbótar þar til brokkolíið er orðið mjúkt og pankoið gyllt á lit.
- Veltið pastanu upp úr sítrónusafa, sýrðum rjóma og ¼ af pastavatninu – bætið við pastavatni ef pastað virðist vera þurrt. Veltið brokkolíinu saman við og stráið panko krumlunum yfir.