Ítalskar kjötbollur eiga svo sannarlega vel við á köldum vetrardögum hvort sem það rignir eða snjóar, en auðvitað má gæða sér á þessum dásamlega rétti allan ársins hring svo það sé alveg á hreinu.
Ógleymanlegar ítalskar kjötbollur með penne pasta
Fyrir fjóra
- 500 g nautahakk
- 500 g grísahakk
- 1 stk. laukur
- 1 stk. hvítlaukur
- 200 g rifinn mozzarella frá Gott í matinn
- 1 stk. egg
- 50 g brauðrasp
- 1 tsk. sjávarsalt
- 1 tsk. pipar
- 50 g parmesan ostur
- 500 g penne pasta
- 500 g tómat-pastasósa
- 120 g ferskur mozzarella
- steinselja
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200 gráður. Setjið pastað í pott og eldið eftir leiðbeiningum á umbúðunum.
- Setjið hakk, lauk, hvítlauk, 100 g rifinn mozzarella, 2 egg, brauðrasp, sjávarsalt, pipar og 50 g rifinn parmesan saman í matvinnsluvél og hakkið þar til allt hefur náð að blandast vel saman.
- Myndið kjötbollur svipaðar að stærð og setjið í eldfast mót með smá ólífuolíu í botninn. Eldið í rúmar 20 mínútur eða þar til bollurnar eru fulleldaðar.
- Setjið pastasósu yfir bollurnar ásamt 100 g af rifnum mozzarella og dreifið ferskum mozzarella yfir jafnt og þétt.
- Setjið bollurnar aftur inn í ofn og eldið í 15 mínútur eða þar til osturinn er alveg bráðnaður.
- Saxið steinselju smátt niður og dreifið yfir bollurnar.
- Berið fram með pasta eða því sem hugurinn girnist og baquett-brauði.