Pasta á alltaf vel við og hér er það beikon og blómkál sem leika aðalhlutverkið — að ógleymdum ostinum sem bræddur er yfir eftir kúnstarinnar reglum.
Ofnbakað pasta með beikoni og blómkáli
4 skammtar
- 5 dl súrdeigsbrauð, skorið í teninga
- 200 g beikon, fínxaxað
- 2 msk. hvítlauksolía, eða ólífuolía
- 500 g pasta, t.d. penne, slaufur eða skrúfur
- 1 kg blómkál, skorið í litla vendi
- 3 dl rifinn gratínostur frá Gott í matinn
- 2 dósir sýrður rjómi, 18% frá Gott í matinn
- sjávarsalt og svartur pipar
- ferskar timíangreinar, má sleppa
Aðferð:
- Stillið ofninn á 180°C.
- Blandið brauðteningum, olíu og beikoni saman í skál. Kryddið með svörtum pipar. Hrærið varlega saman.
- Setjið pastað í sjóðandi saltvatn og sjóðið í 6 mínútur. Bætið þá blómkálinu saman við vatnið og látið malla áfram í 2 mínútur. Takið 3½ dl af vatninu frá og geymið.
- Hellið pastanu og blómkálinu í sigti og látið renna vel af því.
- Hrærið saman í pottinum vatninu sem þið tókuð frá, sýrða rjómanum og ostinum. Smakkið til með salti.
- Blandið pastanu og blómkálinu varlega saman.
- Hellið í smjörsmurt eldfast form og sáldrið beikon-brauðblöndunni yfir ásamt smá auka gratínosti og timían ef vill.
- Bakið í 15-20 mínútur.
- Gott er að láta réttinn standa í 10 mínútur áður en hann er borinn fram.
Höfundur: Erna Sverrisdóttir