Pottréttur af allra bestu gerð sem hjartað mun elska. Það eru rétt um 220 kaloríur sem hver skammtur inniheldur í þessum indverska kjúklingarétti. Og það frábæra er að þú töfrar hann fram á innan við hálftíma.
Ekta indverskur á innan við hálftíma
- 2 msk. ólífuolía
- 1 stór laukur
- 6 hvítlauksrif, marin
- 1 rauður chili, smátt saxaður
- 2 msk. engifer, rifinn
- 1 msk. garam masala
- 1 msk. kóríander
- 2 tsk. sweet paprika-krydd
- Sjávarsalt og pipar (við notum Norðursalt)
- 2 msk. tómatpúré
- 700 g kjúklingabringur, skornar í litla bita (við notum kjúkling frá Ali)
- 1 bolli kjúklingasoð
- ¼ bolli hrein jógúrt (og aðeins meira til að bera fram)
- Hrísgrjón
Aðferð:
- Hitið 2 msk. af olíu í stórum potti á háum hita.
- Bætið lauk saman við og hrærið jafnt og þétt þar til laukurinn byrjar að skipta um lit. Lækkið þá undir á meðalhita og steikið áfram þar til laukurinn verður mjúkur í 3-4 mínútur til viðbótar.
- Setjið hvítlauk og chili út í pottinn og steikið áfram í 1 mínútu.
- Hrærið engifer, garam masala, kóríander, paprikukryddi og ½ tsk. af salti út í pottinn og hrærið í 2 mínútur. Því næst kemur tómatpúré saman við og hrærið áfram í 2 mínútur.
- Kryddið kjúklinginn með salti og pipar og setjið út í pottinn og látið sjóða í 5 mínútur.
- Hellið kjúklingasoðinu saman við og setjið lokið á pottinn í 6-8 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
- Sjóðið hrísgrjón samkvæmt leiðbeiningum. Hrærið jógúrtina og hellið yfir hrísgrjónið – og stráið ferskum kóríander yfir ef vill.
- Berið fram kjúklingapottréttinn með hrísgrjónum og jógúrt.