Mánudagsrétturinn er mættur á borðið – en það er lax í rjómapasta með spínati í matinn. Eitthvað ofureinfalt sem þreytir okkur ekki í eldhúsinu í byrjun vikunnar.
Girnilegur lax í rjómapasta
- 400 g pasta
- 250 g ferskt spínat
- 200 reyktur lax
- 1 dl rjómi
- Hvítlauksrif
- Salt og pipar
Aðferð:
- Sjóðið pastað í léttsöltu vatni.
- Skerið laxinn í litla bita.
- Hellið vatninu af pastanu og setjið rjómann út í pottinn með pastanu. Bætið spínatinu saman við ásamt hvítlauknum, salti og pipar.
- Veltið öllu vel saman á lágum hita þar til rjóminn verður kremkenndur á pastanu og spínatinu.
- Að lokum kemur laxinn út í og blandið vel saman. Smakkið til með salti og pipar.