Nýbakað – já takk! Hér færðu uppskrift að stórkostlegu brauði með fyllingu sem þú munt aldrei gleyma. Fyrir utan að vera bragðgott þá er það líka fallegt, en í uppskriftinni er snúið upp á brauðið áður en það fer í ofninn.
Stórkostlegasta brauð síðari ára
Deig:
- 1 dl mjólk
- 25 g ger
- 1 stórt egg
- 75 g mjúkt smjör
- 250 g hveiti
- 2 tsk. kardemomma
- 2 msk. strásykur
- ½ tsk. fínt salt
Fylling:
- 125 g mjúkt smjör
- 120 g sykur
- 2 tsk. vanillupaste
- raspaður börkur af 1 sítrónu
- 1 msk. ferskt timían
- 100 g hreint marsípan, rifið
Aðferð:
Deig:
- Leysið gerið upp í volgri mjólk og hrærið síðan eggið út í gerblönduna.
- Blandið mjúku smjörinu út í hveitið, þannig það líkist rifnum osti. Bætið kardemommu, sykri og salti út í hveitið og því næst gerblöndunni. Hnoðið allt vel saman.
- Leggið hreint viskastykki yfir skálina og látið hefast í 1 tíma. Gott er að setja skálina inn í ofn eða á álíka stað þar sem hitastigið muni ekki breytast.
Fylling:
- Hrærið öll hráefnin saman fyrir utan timían og marsípan. Rúllið deiginu út á hveitilagt borð í sirka 25-35 cm.
- Smyrjið fyllingunni á deigið og stráið svo timían og marsípani yfir. Rúllið deiginu þétt upp og skerið svo í gegnum það (til að fá tvær langar ræmur) með beittum hníf. Fléttið eða snúið ræmunum saman og setjið brauðið í smurt form (30 cm langt).
- Bakið við 200°C á blæstri í 25-30 mínútur.
Uppskrift: Ditte Julie Jensen
Þetta brauð slær öll met!
mbl.is/Dittejulie.dk