Heimagerðar múslístangir er saklaust millimál sem þú færð ekki samviskubit yfir að borða aðeins of mikið af. Sætan í þessum brjálæðislega góðu bitum kemur frá döðlum og hunangi. Hér getur þú skipt möndlunum út með t.d. hesli- eða valhnetum og þú ræður algjörlega hvort þú dýfir endanum í súkkulaði eða ekki.
Samvisku-bitar sem þú færð ekki nóg af (sirka 15 stk)
- 150 g haframjöl
- 150 g möndlur
- 75 g sesamfræ
- 50 g hörfræ
- 50 g kókosmjöl
- 150 g döðlur
- 150 g fljótandi hunang
- 45 g smjör
- ½ tsk. salt
- 125 g rúsínur eða trönuber
- 150 g dökkt súkkulaði
Aðferð:
- Hitið ofninn á 200°C á blæstri.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og hellið haframjöli, möndlum, sesamfræjum, hörfræjum og kókosmjöli á plötuna. Ristið í ofni þar til hefur tekið lit í sirka 15 mínútur. Setjið þá hráefnin í skál.
- Maukið döðlurnar mjúkar og blandið þeim saman við hunang, smjör og salt í litlum potti. Bræðið saman á meðalhita. Hellið blöndunni saman við ristaða hráefnið og blandið vel saman. Bætið rúsínunum saman við.
- Hellið múslí-massanum í form (21x21 cm) klætt bökunarpappír. Bakið í 15 mínútur.
- Látið alveg kólna áður en þú skerð niður í passlegar stærðir, annars fellur blandan bara í sundur ef hún er ekki orðin alveg köld.
- Bræðið súkkulaði og dýfið stykkjunum þar ofan í – nóg að gera til helminga eða rétt á endann. Setjið í kæli á meðan súkkulaðið harðnar.
- Múslístangirnar endast í allt að tvær vikur í kæli, í lofttæmdu íláti.
Uppskrift: Frederikke Wærens