Veitingastaðurinn Dill hefur endurheimt Michelin-stjörnuna sína sem hann missti í febrúar á síðasta ári. Frá þessu var greint nú síðdegis við hátíðlega athöfn í Þrándheimi í Noregi. Eigandi veitingastaðarins, Gunnar Karl Gíslason matreiðslumeistari, var staðráðinn í að endurheimta stjörnuna.
Gunnar bjó um tíma í New York en ákvað að snúa aftur heim og standa við stóru orðin sem hann greinilega gerði. Hann greindi frá þessum áformum sínum í viðtali við Sunnudagsblað Morgunblaðsins á síðasta ári.
DILL in Reykjavík receives One Star in its new location. Original chef owner @GunnarKarlG has returned from New York and a strong sustainability ethos drives the business #MICHELINGUIDENORDIC #MICHELINSTAR20 #Michelin #Iceland pic.twitter.com/l6Dwg0Jro3
— The MICHELIN Guide (@MichelinGuideUK) February 17, 2020