Döðlur eru eitt það vinsælasta á pizzum í dag og hér eru þær í góðum félagsskap í spennandi kjúklingagrýtu. Ekkert með döðlum getur klikkað.
Spennandi kjúklingagrýta með döðlum (fyrir 4)
- 500 g kjúklingafille frá Ali
- 6 döðlur
- 5 skallottlaukar
- 10 g smjör
- 3 dl matvinnslurjómi
- 1,5 msk. balsamikedik
- 1 tsk. Kikkoman-sojasósa
- 1 msk. kjúklingakraftur
- ½ dl steinselja, gróft söxuð
Aðferð:
- Skerið kjúklinginn í litla bita.
- Skerið döðlurnar til helminga og fjarlægið steininn.
- Bræðið smjörið í potti og brúnið kjúklinginn og laukinn í 2 mínútur. Bætið þá við balsamikedikinu, rjómanum, sojasósunni og kraftinum.
- Látið suðuna koma upp og sjóðið á lágum hita undir loki í 5 mínútur.
- Bætið döðlum, steinselju, salti og pipar saman við og sjóðið áfram í 1 mínútu.
- Berið strax fram með því meðlæti sem óskað er.