Eins og alþjóð veit er bolludagur handan við hornið og samkvæmt venju skelltu súkkulaðisjeníin í Omnom í eina bollu sem verður að kallast tímamóta enda innblásnar af nýja ástarsúkkulaðinu Lakkrís + Raspberry.
Hægt verður að smakka þessar girnilegu bollur á laugardaginn í verslun Omnom í tilefni af konudeginum. Einnig verður hægt að kaupa einstaka konudagsgjöf í samstarfi við Pastel blómastúdío. Opið milli 12-16
Omnom ástarbollur með hindberja lakkrísmús - uppskrift
Kex
- 255 gr smjör, við stofuhita
- 300 gr ljós púðursykur
- 300 gr hveiti
- 1/2 tsk. rauður matarlitur
Aðferð:
- Hrærið saman í hrærivél smjör, púðursykur og matarlit þar til létt og ljóst
- Bætið við hveitinu í 3x skömmtum
- Rúllið út deigið með kökukefli í ca 0.5 cm þykkt og kælið
- Stingið út með útstungunarjárni ca 4 cm hring
Vatnsdeigsbollur - ca. 15 stk.
- 200 gr vatn
- 200 gr mjólk
- 200 gr smjör
- 5 gr salt
- 10 gr sykur
- 200 gr hveiti, sigtað
- 5 egg
Aðferð:
- Hitið ofninn við 180°c
- Setjið saman í pott vatn, mjólk og smjör og hitið þar til smjörið er bráðnað, passið að sjóða ekki.
- Bætið við salti og sykri.
- Að lokum kemur hveitið varlega út í og gott að nota hitaþolna sleikju til að blanda því saman við. Sláið saman í pottinum þar til deigið er komið með fallegan gljáa og losnar auðveldlega frá. Setjið í hrærivélarskál og hrærið saman
- Bætið eggjunum, eitt í einu. Gott er að bæta þeim við á 30 sek fresti.
- Leyfið deiginu að koma saman í vélinni og setjið svo í sprautupoka.
- Festið bökunarpappír á ofnplötu með smá deigi, með því að sprauta í hornin og leggja pappírinn yfir
- Sprautið deiginu í 4 cm bollur og gerið ráð fyrir 3 cm bili á milli.
- Leggið kexdeigshringin ofan á hverja bollu
- Bakið í ca15-20 mín
- Leyfið bollunum alveg að kólna áður þær eru fylltar
Fylling
Omnom Lakkrís-hindberjasúkkulaðimús
- 125 gr rjómi
- 20 gr hunang
- 60 gr Omnom Lakkrís + Raspberry súkkulaði, saxað
- 250 gr rjómi, kaldur
- 7 msk hindberjasulta
Aðferð:
- Sjóðið 125 g af rjómanum með hunangi og hellið yfir súkkulaðið, blandið vel með töfrasprota, þar til ein falleg heild
- Blandið með 250 gr af rjóma út í
- Kælið vel 3-4 tíma
- Þeytið, líkt og þið væruð að þeyta rjóma, í hrærivél (passa að ofþeyta ekki)
- Setjið súkkulaðimúsina og hindberjasultuna í sitthvorn sprautupoka
- Stingið lítið gat undir hverja bollu, nógu stórt fyrir stútin á sprautupokanum
- Fyllið fyrst með ca 1/2 msk af hindberjasultu og svo með súkkulaðimúsinni þar til alveg full.
- Einnig má skera bolluna í tvennt og fylla á gamla mátann
- Bollurnar má setja ínn í kælir í 3-5 klst og er best að borða þær samdægurs