Ef þið eruð að leita að spennandi, frábærri, skemmtilegri, bragðgóðri og ómótstæðilegri ídýfu er hún fundin. Hin eina sanna María Gomez á Paz.is á heiðurinn að henni.
Heit ostadýfa með spínati og ætiþistli
Hráefni
- 1 dós Philadelfia Original-rjómaostur eða 200 gr. rjómaostur að eigin vali
- 70 gr. sýrður rjómi
- 60 gr. majónes (ég notaði Heinz)
- 1 hvítlauksrif marið eða 1/2 geiralaus hvítlaukur marinn
- 60 gr. rifinn parmesan ostur
- 60 rifinn mozzarella-ostur
- Pipar
- 250 gr. ætiþistlar úr krukku
- 150-170 gr. frosið spínat
Aðferð
- Hitið ofninn í 180-185°C blástur
- Byrjið á að taka spínat úr frysti og setja í örbylgjuofn í eins og 2 mínútur
- Kreistið svo allt vatn úr spínatinu og leggið á eldhúspappa til að ná sem mestum raka úr því
- Sigtið svo ætiþistlana svo öll olía eða safi fari af og skerið þá svo smátt
- Hrærið næst saman í skál rjómaosti, sýrðum rjóma, majónesi og mörðum hvítlauknum, piprið ögn og hrærið vel saman
- Setjið næst parmesan-ostinn, mozzarella, spínatið og ætiþistlana saman við og hrærið vel saman
- Setjið í eldfast mót og hitið í ofninum í 20 mínútur
- Berið fram með nýbökuðu baguette-brauði eða nacho-flögum sem dæmi
Punktar
Hér mæli ég með að þið notið frosið spínat. Ástæðan fyrir því er að ferskt spínat er enn með stönglana og getur því verið of gróft í svona dýfu, þegar spínat er frosið er það mýkra og auðveldara að borða án þess að komi taumar eða strengir með sem er ekki skemmtilegt í svona silkimjúka ídýfu. Hægt er að gera dýfuna daginn áður þess vegna, og geyma í kæli yfir nótt, taka hana svo út eins og 1 klst. áður en á að hita hana. Einnig er hægt að hita upp afgangsdýfu en ef þið eigið eitthvað eftir í kæli er hægt að taka það magn út sem þið viljið og hita upp í örbylgjuofni.