Fiskréttur af betri gerðinni – hér er lax marineraður upp úr BBQ-sósu og borinn fram með hrísgrjónum og fersku mangósalsa.
Fiskrétturinn sem allir falla fyrir
- 600 g lax
- 2 msk. púðursykur
- 2 tsk. reykt paprikukrydd
- 1 tsk. lauksalt
- ¼ tsk. chilikrydd
- 1 tsk. salt
- 4 msk. ólífuolía
Mangósalsa:
- 1 mangó
- 1 avókadó
- 1 rauðlaukur
- 1 rautt chili
- Handfylli ferskt kóríander
- 2 msk. limesafi
- 1 tsk. fljótandi hunang
- Salt og pipar
Annað:
Aðferð:
- Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
- Hitið ofninn í 200°C.
- Leggið laxinn með roðið niður á bökunarpappír á bökunarplötu.
- Hrærið saman púðursykur, paprikukrydd, lauksalt, chili, salt og olíu í skál og smyrjið marineringunni yfir laxinn. Bakið í ofni í 15-20 mínútur þar til fiskurinn er eldaður í gegn.
- Mangósalsa: Fjarlægið hýði og stein úr mangóinum og skerið í litla teninga. Skerið einnig avókadó í litla bita. Saxið rauðlauk og chili smátt og saxið kóríanderinn gróflega. Veltið öllu saman í skál og hellið limesafa og hunangi yfir. Kryddið með salti og pipar.
- Setjið hrísgrjónin í skál eða á djúpa diska. Tætið laxinn og dreifið yfir hrísgrjónin ásamt mangósalsa og berið strax fram.