Við sleppum ekki gómsætri snúðauppskrift úr hendi. Þessir kanilsnúðar eru hreint út sagt ómótstæðilegir með mjúkri marsípanfyllingu.
Ómótstæðilegir kanilsnúðar með fyllingu (12-14 stk)
- 50 g ger
- 1 tsk. salt
- 1 tsk. kanill
- 125 g sykur
- 200 g smjör
- 6 dl mjólk
- 1 kg hveiti
Fylling:
- 100 g marsípan
- 100 g mjúkt smjör
- 50 g sykur
Skraut:
- 1 egg
- 50 g saxaðar möndlur
- 4 msk. sykur blandað saman við 1 msk kanil
Aðferð:
- Smuldrið gerinu í skál. Bætið salti, kanil og sykri út í.
- Bræðið smjörið í potti á vægum hita og bætið mjólkinni saman við þar til volg. Hellið þá blöndunni yfir gerið og hrærið það út. Setjið hveitið út í smátt og smátt og hnoðið vel þar til slétt og fínt. Látið deigið hefast undir klút í 30 mínútur.
- Fylling: Rífið marsípanið niður í skál og hrærið saman við sykur og smjör þar til það verður að kremi.
- Hitið ofninn á 180°C. Rúllið deiginu út í stærðina 50x40 cm. Smyrjið fyllingunni á deigið.
- Brjótið 1/3 af deiginu inn að miðju og síðan hinn helminginn yfir fyrsta helminginn. Rúllið deiginu út aftur í 40x40 cm og skerið í 12 strimla, sirka 3 cm breiða. Skerið hvern strimil til helminga og snúið upp á þá saman í hnút. Setjið á bökunarpappír á bökunarplötu.
- Penslið snúðana með pískuðu eggi og stráið söxuðum möndlum og kanilsykri yfir.
- Bakið í 12-15 mínútur þar til gylltir á lit.
- Látið kólna á rist.