Það er sannkölluð veisla þegar brauð sem þetta kemur á borðið. Grillað focaccia er ómótstæðilegt og hvað þá með karamellulauk og hvítlaukssmjöri. Namm! Ef þið hafið tíma, þá má alveg leyfa lauknum að malla eins lengi á pönnunni og mögulegt er.
Grillað focaccia sem engan svíkur
- 2 sætir laukar, skornir í þunna strimla
- 4 msk. ósaltað smjör
- 1 msk. ólífuolía
- ½ tsk. salt
- 1 ¾ bolli heitt vatn
- 2 ¼ tsk. þurrger
- 1 msk. hunang
- 5 bollar hveiti
- 2 tsk. hvítlaukskrydd
- 2 tsk. sjávarsalt
- 1/3 bolli ólífuolía
- 4 msk. ósaltað smör, bráðið
- 3 hvítlauksrif, marin
- ¼ bolli kryddjurtir að eigin vali, t.d. basilika, óreganó, dill, timjan
- ½ msk. flögusalt
Aðferð:
- Hitið stóra pönnu eða pott á lágum hita og setjið 4 msk. smjör og 1 ms.k ólífuolíu út í. Setjið því næst laukinn og salt út á pönnuna og steikið – hrærið jafnt og þétt þar til laukurinn verður karamelluseraður í 1-2 tíma. Tékkið alltaf reglulega á lauknum og hrærið inn á milli.
- Setjið heitt vatn og ger í skál ásamt hunangi. Látið standa í 10-15 mínútur.
- Setjið hveiti, hvítlaukskrydd, 1 msk. af salti, ½ bolla af ólífuolíu og gerblönduna saman í hrærivélarskál. Látið vinna í 5-6 mínútur. Setjið meira hveiti ef deigið er of klístrað því það á að vera slétt.
- Setjið deigið í skál smurða með olíu og leggið viskastykki yfir. Látið standa á heitum stað og hefast í 1 tíma.
- Þegar deigið hefur tvöfaldað sig skaltu skipta því upp í 4 hluta. Fletjið deigin út í sirka 10x20 cm og setjið á bökunarpappír með smá hveiti undir. Ýtið aðeins á deigið til að það líkist ekta focaccia. Setjið til hliðar á heitan stað og látið hefast í 20-30 mínútur.
- Hitið, grillið eða setjið á grillstillingu á ofninum á 230°.
- Bræðið restina af smjörinu og setjið hvítlaukinn saman við ásamt kryddjurtum.
- Setjið hveiti á skurðarbretti eða annað til að flytja deigið auðveldlega á grillið, eitt í einu. Penslið brauðin með ólífuolíu. Þegar brauðið er komið á grillið er ekki hægt að færa það nema að rífa brauðið, svo leyfið því að vera þar sem það endar.
- Grillið í 1-2 mínútur og snúið því svo og grillið hina hliðina líka. Takið brauðið af grillinu og setjið á bökunarpappír. Endurtakið með hin brauðin.
- Penslið brauðin með hvítlaukssmjöri og dreifið kryddjurtum yfir. Dreifið flögusalti yfir.
- Setjið karamellulauk yfir brauðin, skerið og berið fram.