Morgunmúffur sem þú getur ekki staðist

mbl.is/Frederikkewærens.dk

Við elskum góðar morgunmúffur – og þá sérstaklega um helgar. Hér eru þær mjúkar og fullar af orku og henta því vel í brönsinn eða sem snakkbiti seinnipartinn þegar úlfatíminn hringir bjöllunni á heimilinu.

Morgunmúffur sem þú getur ekki staðist (9 stk.)

  • 3 dl súrmjólk
  • 3 dl haframjöl
  • 2 egg
  • 2 msk. hunang, fljótandi
  • ¾ dl rapsolía eða önnur álíka
  • 225 g þurrkaðir ávextir, t.d. döðlur, apríkósur, fíkjur eða rúsínur
  • 75 g heslihnetur, grófhakkaðar
  • 120 g hveiti
  • salt á hnífsoddi
  • 2 tsk. lyftiduft

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°C á blæstri.
  2. Blandið súrmjólk og haframjöli saman.
  3. Pískið egg og hunang þar til létt og loftkennt og bætið þá rapsolíunni saman við.
  4. Saxið þurrkuðu ávextina og setjið út í eggjablönduna ásamt söxuðu hnetunum.
  5. Blandið hveiti, salti og lyftidufti saman og veltið upp úr deiginu ásamt súrmjólkinni og haframjölinu.
  6. Hellið deiginu í níu form og bakið í ofni í 25-30 mínútur.
  7. Látið múffurnar kólna og njótið.

Uppskrift: Frederikke Wærens

- - -

Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...

Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl

Ljósmynd/Colourbox
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert