Það er með vinahópnum eða í saumaklúbbnum sem svona snakkbitar eiga að smakkast. Hér er búið að fylla ólífur með fetaosti, velta upp úr brauðraspi og steikja. Hér er líka upplagt að nota geitaost í stað feta fyrir þá sem það vilja.
Uppskriftin er frá Yotam Ottolenghi sem er með þeim snjallari í bransanum en heimasíðuna hans er hægt að nálgast HÉR.
Ólífusnakkið sem saumaklúbburinn elskar
- 20-30 medium stórar grænar ólífur
- 50 g fetakubbur, mulinn
- 3 msk. hveiti
- ½ tsk. pipar
- ½ tsk. chili flögur
- 1 egg
- 80 g panko brauðrasp
- 300 ml góð olía til steikingar
Aðferð:
- Fyllið hverja ólífu vel með fetaosti og þurrkið ólífurnar svo hreinar með eldhúspappír.
- Blandið hveiti, pipar og chili á grunnan disk. Setjið eggið á annan disk og brauðraspinn á þann þriðja.
- Veltið ólífunum upp úr hveiti, því næst pískuðu eggi og svo brauðraspinum þannig að hann þekji alla ólífuna.
- Hitið olíu á pönnu þannig að hún verði mjög heit. Setjið um þriðjung af ólífunum á pönnuna, eða þannig að það sé ekki allt of troðið. Passið að missa þær ekki á pönnuna til að olían slettist ekki á ykkur.
- Steikið í 20 sekúndur þar til gullinbrúnar á lit, takið af og látið fituna leka af á eldhúspappír. Endurtakið með restinni af ólífunum.
- Berið fram heitar eða við stofuhita.
Uppskrift: Ottolenghi