Hér gefur að líta frábæra súpu. Hún er bragðsterk og góð enda undir austurlenskum áhrifum. Það skemmtilega við hana er að þú ræður hvort þú setur í hana rækjur eða eitthvað annað – eins og til dæmis kjúkling. Eða hefur hana bara grænmetis. Þitt er valið.
Taílensk súpa
4 skammtar
- 1 dl hrísgrjón soðin í 2 dl vatni
- 3 msk. smjör
- 400 g risarækjur
- 3 stk. hvítlauksgeirar
- 1 stk. laukur
- 1 msk. rauð paprika
- 2 cm ferskt engifer
- 4 tsk. rautt karrípaste
- 1 tsk. karrí
- 3 dl matreiðslurjómi frá Gott í matinn
- 400 ml kókosmjólk í dós
- 1 lítri vatn
- 2 stk. grænmetisteningar
- 4 msk. ferskt kóríander
- 1 límóna, safinn
- salt og pipar
Aðferð:
- Byrjið á því að sjóða hrísgrjónin í 2 dl af vatni.
- Gott er að slökkva undir grjónunum þegar vatnið er alveg að verða búið og setja lokið á pottinn, þannig klára þau að eldast í gufunni.
- Setjið smjör á pönnu, setjið rækjurnar á pönnuna ásamt salti og pipar og steikið þar til þær eru tilbúnar. Passið ykkur að elda þær ekki of mikið því þá verða þær seigar. Gott er að elda þær í um þrjár mínútur á hvorri hlið.
- Þegar rækjurnar eru fulleldaðar setjið þær þá í skál og geymið þar til súpan er tilbúin.
- Þeir sem nota eldaðar rækjur þurfa ekki að steikja þær heldur setja þær beint ofan í súpuna.
- Skerið lauk, papriku og hvítlauk niður og steikið á pönnunni.
- Rífið engifer saman við og hrærið saman.
- Bætið rauðu karríi og karríi saman við ásamt kókosmjólk og rjóma.
- Blandið vatni saman við ásamt grænmetisteningunum og hrærið þar til súpan fer að sjóða. Gott er að leyfa henni að sjóða í rúmar 10 mínútur til að leyfa henni að þykkna.
- Setjið hrísgrjónin saman við ásamt rækjunum og koríander.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl