Ommeletta með fyllingu er dásamleg byrjun á deginum. Hér er um einfalda útgáfu sem bragðast betur en hugsast getur.
Ommeletta sem þú mátt alls ekki missa af (fyrir 4)
- 8 egg
- ½ dl mjólk
- Salt og pipar
- 100 g beikon
- Ólífuolía
- 2 stórar mozzarella kúlur
Annað:
- 200 g spínat
- 100 g fetaostur
Aðgerð:
- Pískið egg með mjólk og kryddið með salti og pipar.
- Steikið beikon á pönnu upp úr olíu.
- Takið beikonið af pönnunni og setjið smá olíu á pönnuna. Hellið sirka ¼ af eggjamassanum á pönnuna og steikð þar til massinn byrjar að festa sig.
- Rífið mozzarella ostinn í litla bita og leggið fjórðung á helminginn af eggjakökunni, ásamt smáveigis af beikoni.
- Steikið þar til eggjamassinn hefur tekið sig.
- Brjótið eggjakökuna í hálfmána og setjið já disk.
- Endurtakið allt saman þar til þú ert með fjórar eggjakökur í heildina.
- Blandið spínati og fetaosti saman og veltið upp úr smá olíu.
- Berið fram ommelettu og spínatsalat með fetaosti.