Hér er ein klassísk og afskaplega góð uppskrift að brownie með hnetum. Það sem einkennir góða brownie er súkkulaðið – og því skaltu alls ekki spara kaupin í góðu súkkulaði. Þar liggur undirstaðan í gæðunum í kökunni.
Hinn fullkomni súkkulaðidraumur
- 200 g smjör
- 200 g dökkt súkkulaði (má líka hafa blandað)
- 125 g hveiti
- 3 stór egg
- 250 g sykur
- Korn af 1 vanillustöng
- ½ tsk. salt
- ½ kanill
- 100 g dökkt súkkulaði (þetta er fyrir utan hin 200 g)
- 100 g hnetur, valhnetur, heslihnetur, pistasíur
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C.
- Saxið 200 g af súkkulaði smátt.
- Bræðið smjörið í potti, passið að það byrji ekki að sjóða. Og bætið súkkulaðinu saman við smjörið.
- Pískið hveiti, egg, sykur, vanillukorn, kanil og salt í loftkennt deig.
- Veltið súkkulaðiblöndunni varlega saman við deigið.
- Saxið 100 g af súkkulaði og hneturnar gróflega – og veltið þeim í deigið.
- Setjið bökunarpappír í ferkantað mót, 22x22 cm, og hellið deiginu í mótið.
- Bakið í 25 mínútur við 200°C.
- Látið aðeins kólna áður en þú skerð kökuna í bita.