Þessi bolluuppskrift er sú allra besta – og smakkast svo vel með smjöri einu saman. Hér þarftu ekkert að hnoða tímunum saman því deigið á að vera klístrað og létt.
Bollurnar sem þarf ekki að hnoða (ca. 12 stk)
- 5,5 dl volgt vatn
- 15 g ger
- 4 dl haframjöl
- 2 msk. súrmjólk eða skyr
- 1 tsk. salt
- 1 msk. hunang
- 1 dl graskerskjarnar
- 200 g heilhveiti
- 200 g grahamsmjöl
- 100 g hveiti
Aðferð:
- Leysið gerið upp í vatninu. Bætið haframjöli og súrmjólk út í og látið standa í 10 mínútur.
- Bætið salti, hunangi og graskerskjörnum í skálina.
- Blandið þremur hveititegundunum saman og hellið því smátt og smátt út í deigið á meðan þú hrærir í með skeið. Hrærið þar til deigið verður að einum massa. Deigið á að vera pínu klístrað og blautt. Leggið hreint viskastykki yfir skálina og látið hefast í 2 tíma við stofuhita.
- Þegar deigið hefur náð að hefast að mestu, kveikið þá á ofninum á 250° og látið eina bökunarplötu standa í á meðan deigið klárar að hefa sig.
- Notið blautar skeiðar til að setja deig/bollur á bökunarpappír og dragið svo pappírinn yfir á heitu plötuna.
- Stráið jafnvel smáveigis af graskerskjörnum yfir og bakið neðst í ofni í 14-16 mínútur þar til gylltar og stökkar ef þú bankar létt í þær.