Jarðarberjaterta hleypir vatni í munninn hjá mörgum og er í miklu uppáhaldi. Þessi einstaka uppskrift að tertunni slær allar aðrar bakarískökur út af borðinu.
Tertan sem er betri en úr bakaríi
Deig
- 150 g smjör
- 240 g hveiti
- 125 g sykur
- 1 tsk. vanillusykur
- 1 egg
Fylling
- 100 g smjör
- 100 g sykur
- 100 g marsípan (rifið)
- ½ egg
- Tilbúið kökukrem
- 2½ dl mjólk
- ¼ rjómi
- 100 g dökkt súkkulaði
- Jarðarber
- Rifsberjasulta
Aðferð:
- Skerið smjörið í litla bita og smuldrið því í hveitið.
- Blandið sykri og vanillusykri saman við og hnoðið svo egginu út í.
- Rúllið deigið út og leggið í tertuform.
Fylling:
- Hrærið smjör og sykur saman og því næst kemur marsípanið og eggið.
- Setjið blönduna á tertubotninn og bakið við 200° í 20 mínútur. Takið úr ofninum og látið kólna.
- Kökukrem (hversu mikið, fer eftir hvaða krem er notað) og mjólk hrærist vel saman. Pískið rjómann og blandið saman við.
- Bræðið súkkulaði og penslið tertubotninn.
- Setjið kökukremið ofan á og skreytið með hálfskornum jarðarberjum sem þú penslar með rifsberjasultu.
- Setjið í kæli í 1 tíma áður en borið er fram.