Hér er smáréttur sem þú getur notað sem forrétt, sem meðlæti eða borið fram með freyðivínsglasi á pallinum í sumar. Litlar brúsettur með ricottakremi og fíkjum – eða smáréttur sem skorar fullt hús stiga.
Smáréttur upp á tíu
- 1 gróft snittubrauð
- 2 msk. ólífuolía
- 1 stórt hvítlauksrif
- 3 ferskar fíkjur
Ricottakrem
- 100 g ricotta
- ½ tsk flögusalt
- 2 tsk. ólífuolía
Annað
- 2 tsk. fljótandi hunang
- 4 timíangreinar
Aðferð:
- Skerið snittubrauðið í 12 penar sneiðar og penslið með ólífuolíu.
- Steikið brauðið báðum megin á heitri pönnu þar til gyllt og stökkt.
- Skerið hvítlaukinn til helminga og nuddið brauðið með hvítlauknum.
- Ricottakrem: Hrærið ricotta saman við salt og ólífuolíu þar til verður að kremi.
- Skerið fíkjurnar í fjóra hluta og smyrjið ricottakremi á hverja brauðskífu. Leggið fíkju ofan á hverja brauðsneið og dreypið hunangi yfir.
- Berið fram með fersku timían og kryddið jafnvel með salti ef vill.