Chris Kyle er ósköp venjulegur faðir, sem brennur fyrir að styðja fyrirtæki í eigu svartra. Nýlega heimsótti hann eftirminnilegan veitingastað og skrifaði bráðfyndna umsögn um heimsóknina.
Umræddur rekstur er undir höndum dóttur hans, Ava, sem er sjálfstætt starfandi kokkur. Hún tók vel á móti Chris og bauð honum besta sætið á staðnum – inni í miðju eldhúsi. Ava sá um að taka niður pantanir ásamt því að hafa fulla stjórn í eldhúsinu við að elda matinn — klædd krúttlegri kokkahúfu og bleikri svuntu með pífum.
Chris starfar við frumkvöðlastörf og sagðist hafa heimsótt enn einn reksturinn í eigu svartra í hádeginu þennan umrædda dag. Staðurinn kallist Ava‘s Kitchen og opnaði í lok aprílmánaðar. Staðurinn hafi verið snyrtilegur en hann hafði nokkur orð um eigandann að segja.
Chris sagðist hafa spurt út í blöðrur sem lágu í sætinu hans, því ekki átti hann afmæli þennan dag. Ava sagði honum að vera ekki að skipta sér af því sem honum kæmi ekki við, blöðrurnar væru í eigu móður hennar. Eins sagðist hann hafa beðið í 45 mínútur eftir matnum sínum þrátt fyrir að vera eini gesturinn á staðnum. Hann sá kokkinn vera undir fullri stjórn að undirbúa matinn en hafi svo stoppað í 20 mínútur til að horfa á Paw Patrol í sjónvarpinu. Hann sagði að þjónustuna mætti klárlega bæta en kokkurinn væri mjög krúttlegur.
Þrátt fyrir hnökrótta upplifun sagðist Chris vera tilbúinn að gefa Ava‘s Kitchen annan séns í framtíðinni. Við mættum ekki gefast upp á „black business“ eftir ein mistök.
Chris birti ummælin og myndir á Instagram, og athugasemdakerfið var ekki lengi að fyllast. Hann sagðist vera ánægður að sjá hversu glöð dóttir hans væri með eldhúsið sem kostaði nokkur hundruð dollara. Á meðan annar faðir sagðist hafa lent í svipuðu dæmi – hann þurfti að senda samloku til baka til kokksins þar sem kalkúninn var búinn til úr grænum leir og tebollinn hans var bara vatn.