Alfreð Fannar er einn vinsælasti grillari landsins í dag, sem flestir þekkja undir nafninu BBQ kóngurinn. Hér býður hann okkur upp á grilluppskrift sem bragðlaukarnir ærast yfir. Grilluð nautalund með sveppum, beikoni og rauðvínsvinagrettu – gjörið svo vel!
Alfreð Fannar er kominn með sinn eigin sjónvarpsþátt á Stöð 2 þar sem hann sýnir landanum hvernig eigi að flippa spaðanum á grillinu - og ekki er vitað til þess að nokkur annar eigi jafn mörg grill á pallinum hér á landi, sem telja sjö í það heila hjá kónginum. En það má einnig fylgjast nánar með grillmeistaranum HÉR.
Grillsteik að hætti BBQ kóngsins
- 4 x 200 g nautalund steikur
- Olía
- SPG krydd, (salt, pepper and garlic)
- 5 sneiðar beikon
- 5-10 sveppir
Vínagretta
- 60 ml olía
- 50 ml rauðvínsedik
- 2 tsk. dijon sinnep
- 2 pressaðir hvítlauks geirar
- ½ tsk. salt
- ½ tsk. pipar
Aðferð:
- Setjið olíu á steikina og kryddið með SPG.
- Kveikið upp í grillinu og stillið það á 120 gráður og grillið steikina á óbeinum hita uppí 49 gráðu kjarnhita.
- Takið steikina af og kyndið grillið í botn.
- Á meðan grillið er að hita sig steikið þið beikon á meðan, þegar beikonið er orðið steikt setið þið sveppi út á og leyfið þeim að steikjast í beikon fitunni.
- Brúnið kjötið og látið standa í 10 mín.
- Berið fram með því meðlæti sem óskað er.
- Vinagretta: Blandið öllum hráefnum saman.