Hvernig hljómar hnetumarengsterta með mascarponekremi og nýjum ferskum sumarberjum? Einmitt – það hljómar unaðslega!
Marengsdraumur með ferskum berjum (fyrir 10)
Marengs
- 5 eggjahvítur
- 200 g sykur
- 200 g smátt saxaðar ristaðar heslihnetur
- 75 g hvítt súkkulaði, saxað
- 75 g smjör við stofuhita (plús smá meira til að smyrja formið)
- 2 msk. hveiti
Mascarponekrem
- 250 g mascarpone
- ½ dl flórsykur
- ½ vanillustöng
- 3 dl rjómi
Annað
- 500 g jarðarber
- 200 g hindber
- 125 g bláber
- flórsykur
Aðferð:
- Pískið eggjahvíturnar stífar og bætið sykri saman við smátt og smátt. Pískið þar til marengsinn er loftkenndur.
- Saxið hnetur og súkkulaði smátt og setjið út í deigið. Því næst kemur bráðið smjör og hveiti varlega út í.
- Klæðið botninn á smelluformi með bökunarpappír og smyrjið hliðarnar með smjöri. Stráið örlitlu hveiti í formið og hellið deiginu út í.
- Bakið við 175°C í 45 mínútur og látið alveg kólna.
- Losið hliðarnar á forminu varlega frá og setjið tertubotninn á stórt fat.
- Pískið mascarpone, flórsykur og vanillukornin létt saman. Bætið við rjóma og pískið þar til kremið verður þykkt og loftkennt.
- Smyrjið kreminu á botninn og toppið með ferskum berjum að eigin vali. Sigtið flórsykur yfir í lokin og berið fram.