Þetta er kakan sem þú vilt baka um helgina og bjóða upp á með kaffinu. Dúnamjúk og bragðgóð appelsínukaka með ricotta og möndlum á toppnum. Við mælum með að vanda valið er bakaðar eru kökur með hveiti. Því köku-hveiti gera kökubotnana meira loftkennda og smákökurnar verða stökkari.
Girnileg appelsínukaka með ricotta og möndlum (fyrir 10-12)
- 150 g mjúkt smjör
- 200 g sykur
- 1 tsk. vanillupaste
- 2 appelsínur, safinn og raspaður börkur
- 4 stór egg
- 250 g ricotta
- 50 g möndlumjöl
- 200 g hveiti
- 1 tsk. lyftiduft
- 50 g möndluflögur
- Flórsykur
Aðferð:
- Pískið smjör, sykur og vanillupaste þar til létt og ljóst. Pískið eggin út í, eitt í einu.
- Blandið röspuðum appelsínuberki, safa og ricotta saman í skál og setjið út í blönduna.
- Setjið möndlumjöl, hveiti og lyftiduft í skál og sigtið því út í blönduna.
- Hellið deiginu í form, 22 cm, og dreifið möndluflögum yfir.
- Bakið við 180°C í 45-55 mínútur.
- Látið kólna og stráið flórsykri yfir áður en borið er fram.
Uppskrift: Ditte Julie Jensen