Hér eru gotteríis snúðar að koma úr ofninum. Ekta brauðsnúðar með ítalskri fyllingu – eða með pestó og parmaskinku. Nammi namm!
Ítalskir brauðsnúðar með parmaskinku
- 25 g ger
- 2 dl mjólk
- 2 egg
- 1 tsk salt
- 100 g smjör
- 500 g hveiti
Fylling
- 100 g pestó
- 100 g parmaskinka
Aðferð:
- Hitið mjólkina volga í potti eða örbylgju. Leysið gerið upp í mjólkinni.
- Setjið egg og salt út í mjólkina og smuldrið smjörinu út í hveitið. Blandið gerblöndunni saman við hveitið og hnoðið þar til slétt og mjúkt.
- Látið hefast í 1 tíma.
- Skerið parmaskinku í bita og blandið pestói saman við.
- Fletjið deiginu út í sirka 30x42 cm. Smyrjið fyllingunni á. Leggið 1/3 af deiginu yfir að heilmingnum og síðan aftur yfir. Þannig að fyllinginn sé öll inn í deiginu.
- Fletjið deigið aftur út í sirka 22x25 cm og skerið í 3 cm breiða strimla. Snúið upp á strimlana.
- Setjið á bökunarpappír á bökunarplötu og látið hefast í 15 mínútur.
- Bakið í miðjum ofni við 200° í 15-18 mínútur.