Hér er bearnaise-sósan í nýjum búning með skyri. Fersk sósa í léttari kantinum sem hentar með öllum grillsteikum sumarsins. Það tekur þig rétt um fimm mínútur að útbúa þessa snilld!
Fullkomið skyr-bearnaise með grillsteikinni (fyrir 4)
- 2 dl skyr
- 1 dl majónes
- 2 msk. estragon, saxað
- 1 msk. steinselja, söxuð
- 1 msk. kerfill, saxaður (má sleppa)
- 1 msk. rifinn laukur
- 1 msk. bearnaiseessens
- Salt og pipar
Annað:
- Kjöt að eigin vali
- Litlar kartöflur og gott salat
Aðferð:
- Penslið kjötið með olíu og kryddið með salti og pipar. Grillið á heitu grillinu.
- Hrærið öll hráefnin saman í sósuna og látið standa í kæli í 1 tíma áður en borin er fram.
- Berið fram grilllkjöt með kaldri skyr-bearnaise, salati og nýjum kartöflum.