Hér er ekkert óþarfa vesen – því í þessari uppskrift er allt í einum potti. Lasagne eins og það gerist best fyrir þá sem vilja sleppa við auka uppvask.
Lasagne í einum potti
- 1 laukur
- 2 sellerí stilkar
- 2 gulrætur
- 1 msk. ólífuolía
- 50 g beikon í litlum bitum
- 500 g nautahakk
- 1 dl rauðvín
- 1 dós hakkaðir tómatar
- 2 msk. tómat púré
- 4 dl kraftur
- Salt og pipar
- 1 msk. þurrkað oreganó
- 1 tsk. timían
- 8 lasagneplötur
Annað
- 2 dl sýrður rjómi, 18 %
- 150 g rifinn ostur
- Basilika til skrauts
Aðferð:
- Saxið lauk, sellerí og gulrætur smátt. Steikið upp úr olíu í potti. Bætið beikoni saman við ásamt nautahakkinu og steikið áfram.
- Hellið rauðvíni út í pottinn og látið sjóða. Setjið tómatana, tómat púré og kraft út í og leyfið suðunni að koma upp.
- Látið sósuna malla í 20 mínútur undir loki – hrærið inn á milli. Smakkið til með salti og pipar.
- Brjótið lasagneplöturnar í minni bita og setjið út í kjötsósuna – látið malla í 10 mínútur. Hrærið reglulega í sósunni svo hún brenni ekki við.
- Dreyfið sýrðum rjóma yfir ásamt rifnum osti. Setjið lok ofan á pottinn og leyfið réttinum að malla í 5 mínútur undir lokinu.
- Ef potturinn þolir að fara inn í ofn, getur þú bakað lasagne við 225° í 5-10 mínútur.
- Skreytið með ferskri basiliku og berið fram.