Þessar bollakökur eru algjört æði fyrir þá sem kunna að meta góðan bakstur. Hér er uppskrift að bollakökum með kaffi-karamellukremi.
Bollakökur fyrir sælkerasálir
- 125 g mjúkt smjör
- 150 g sykur
- 2 tsk vanillusykur
- 2 egg
- 2 msk sítrónusafi
- 1 dl mjólk
- 250 g hveiti
- 1 tsk lyftiduft
Kaffi-karamellukrem
- 2 matarlím
- 1 dl sterkt kaffi
- 100 g dulche de leche
- 2,5 dl rjómi
- 25 g mjúkt smjör
Skraut
Aðerð:
- Pískið smjör, sykur og vanillusykur saman. Pískið eitt egg saman við í einu. Hrærið sítrónusafa, mjólk, hveiti og lyftidufti út í.
- Setjið deigin í muffinsform og bakið við 175° í 25 mínútur, þar til gylltar og bakaðar í gegn.
- Látið matarlímið standa í köldu vatni í 10 mínútur, bræðið það síðan í heitu kaffi. Látið kólna í 10 mínútur.
- Hrærið kaffinu og dulche de leche saman. Pískið rjómann og blandið kaffiblöndunni því næst saman við rjómann ásamt mjúku smjörinu.
- Setjið kremið í skál og látið standa í ísskáp í 1-2 tíma. Smyrjið kreminu á kökurnar og skreytið með söxuðu súkkulaði.