Litlar, loftkenndar og gjörsamlega ómótstæðilegar marengskökur með hnetum og jarðarberjarjóma. Þessar eru of flottar og bragðgóðar til að láta framhjá sér fara.
Ómótstæðileg jarðarberjabomba
Hnetumarengs
- 175 g hnetur, t.d. heslihnetur eða möndlur
- 2 eggjahvítur
- 175 g sykur
- 100 g dökkt súkkulaði
Jarðarberjarjómi
- 300 g jarðarber
- 50 g flórsykur
- 1 peli rjómi (eða meira ef vill)
Annað
- 6 stálhringir, 8 cm í þvermál / það má líka notast við eitt stórt form, 20 cm
- 300 g blönduð ber, t.d. jarðarber, hindber og rifsber
- dökkt súkkulaði til að skreyta
Aðferð:
- Stillið ofninn á 160°C.
- Grófhakkið hneturnar – og passið að þær myljist ekki of mikið.
- Pískið eggjahvíturnar stífar. Bætið þá sykri saman við og pískið alveg stífar.
- Veltið hnetunum og saxaða súkkulaðinu í marengsinn.
- Setjið stálhringina á bökunarpappír á bökunarplötu og skiptið deiginu jafnt á milli formanna. Bakið í 25 mínútur.
- Hreinsið jarðarberin og stráið flórsykri yfir – blandið saman.
- Pískið rjómann og veltið jarðarberjunum saman við. Setjið rjómann í sprautupoka með stjörnulaga stút.
- Losið kökurnar úr forminu og sprautið jarðarberjarjómanum ofan á. Skreytið með jarðarberjum og súkkulaðispæni.
Uppskrift: BoBedre.dk