Hver elskar ekki sumarið – og hver elskar ekki svalandi jarðarberjasjeik? Hér er bragðgóð uppskrift sem við fengum lánaða hjá vinum okkar Ben & Jerry‘s, sem fjölskyldan mun elska. Eins auðveld uppskrift og hugsast getur en skilur eftir sig svo mikla ánægju fyrir bragðlaukana.
Jarðarberjasjeik sem fjölskyldan elskar
- 2 stóra kúluskeiðar af Ben & Jerry´s Strawberry Cheesecake Ice Cream
- 120 ml mjólk
- 1/2 bolli hindber
- 1/2 bolli bláber
- 4 stór jarðarber
Aðferð:
- Blandið saman ís, mjólk og berjum í blandara og blandið vel saman þar til engir kekkir.
- Hellið í glös og toppið með þeyttum rjóma og berjum ef vill.
Ómótstæðilegur jarðarberjasjeik frá Ben & Jerry´s.
mbl.is/Ben & Jerry´s