Hversu fallegur drykkur! Það er varla að við tímum að drekka úr glösunum, en látum okkur hafa það – enda einn fallegasti og girnilegasti helgarkokteill til þessa. En það er Hildur Rut sem skálar við okkur að þessu sinni.
„Ég var nánast búin að gleyma þessum kokteil en í gegnum tíðina hef ég pantað mér hann oft og mörgum sinnum erlendis og þá sérstaklega á mexíkóskum veitingastöðum. Ég ákvað að prófa að gera hann sjálf og namm hvað hann heppnaðist vel. Það eina sem þarf að gera er að setja allt hráefnið í blender og hræra. Ég mæli með að þið prófið þennan,” segir Hildur Rut.
Helgarkokteillinn er jarðaberja margarita
- 4 cl Tequila Sauza Silver
- 2 cl cointreau
- 2 cl safi úr lime lime
- 3 cl sykursíróp (eða venjulegt síróp)
- 1 dl frosin jarðaber
- 2 dl klakar
- ½ dl appelsínusafi
- Salt eða sykur og lime bátur til að skreyta glasið (má sleppa)
Aðferð:
- Byrjið á því að skreyta brúnina á glasinu. Nuddið lime báti við hana þar til hún verður blaut. Hellið sykri eða salti á disk, dýfið glasinu öfugu ofan í og þekjið brúnina.
- Hellið tequila, cointreau, safa úr lime, sykursírópi, jarðaberjum, klökum og appelsínusafa í blender og hrærið vel saman.
- Hellið í glas og njótið.
Sykursíróp
- Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott.
- Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.
- Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.
Þessi drykkur kallar á gott helgarfrí.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir