Sem betur fer þarf bakstur ekki að vera erfiður og við þurfum ekki mikið af hráefnum til að framleiða eitthvað ljúffengt í eldhúsinu. Hér eru Maltesers-bitar sem þú hristir fram á korteri!
Maltesers-bitar á 15 mínútum
- 100 g smjör
- 200 g mjólkursúkkulaði
- 3 msk síróp
- 225 g digestivekex
- 204 g Maltesers
- 175 g hvítt súkkulaði
Aðferð:
- Bræðið smjör, mjólkursúkkulaði og síróp á pönnu á meðalhita í nokkrar mínútur þar til mjúkt.
- Myljið kexið niður í matvinnsluvél eða poka.
- Setjið súkkulaði-smjörblönduna í skál saman við kexið. Bætið Maltesers-kúlunum saman við (skiljið nokkrar eftir til skrauts) og blandið vel saman.
- Setjið blönduna í 20 cm fat og þrýstið vel út í hliðarnar.
- Bræðið hvíta súkkulaðið yfir vatnsbaði og hellið yfir Maltesers-kexblönduna. Myljið Maltesers-kúlur yfir og setjið inn í ísskáp í þrjá tíma. Takið þá út og skerið í bita.