Það jafnast ekkert á við að vakna einn kaldan skammdegismorgun við nýbakaðar smákökur í ofninum. Því þessar kökur bakast á meðan þú sefur! Hér eru marengstoppar með hnetu- og súkkulaðifyllingu.
Marengstoppar sem bakast yfir nóttina
- 2 eggjahvítur
- 120 g sykur
- 1 tsk vanilludropar
- 150 g hnetur, súkkulaði eða það sem hugurinn girnist. Í þessari uppskrift eru pistasíuhnetur og hvítt súkkulaði.
Aðferð:
- Hitið ofninn á 180°C.
- Pískið eggjahvíturnar stífar og setjið sykurinn smátt og smátt út í á meðan þið þeytið.
- Saxið hnetur og súkkulaði í skál og blandið vanilludropunum saman við. Setjið blönduna varlega saman við til að loftið fari ekki úr marengsblöndunni.
- Setjið kúfaðar matskeiðar af deiginu á bökunarpappír á bökunarplötu.
- Setjið bökunarplötuna inn í heitan ofninn og slökkvið á ofninum. Látið deigið bakast inni í heitum ofninum yfir nótt á meðan hann kólnar.
- Kökurnar geymast í allt að þrjá daga.
Hnetur, súkkulaði eða það sem hugurinn girnist. Í þessari uppskrift er notast við pistasíu hnetur og hvítt súkkulaði.
mbl.is/Laura Abernethy