Nú drögum við að okkur allt sem minnir á jólin, og þar með talið girnilegar ostakökur sem smakkast eins og aðventan sem er rétt handan við hornið.
Ostakaka sem bragðast eins og jólin
Kexbotn
- 100 g hafrakex (digestive)
- ½ tsk kanill
- 200 g smjör
- 250 pipardropar
Kanil-rjómaostskrem
- 1 tsk kanill
- 2,5 dl rjómi
- 2 tsk. raspaður límónubörkur
- 100 g flórsykur
- 400 g rjómaostur
Kirsuberjagel
- 250 g kirsuberjasósa
- 3 tsk. matarlím
- 1 dl vatn
Aðferð:
Kexbotn
- Setjið kexið í poka og myljið.
- Bræðið smjörið á vægum hita og hrærið saman við kexið.
- Setjið blönduna í smelluform og látið kólna í forminu.
Kanil-rjómaostskrem
- Leggið 4 matarlímsblöð í bleyti í 5 mínútur.
- Pískið rjómaostinn saman við kanil, flórsykur og raspaðan límónubörk.
- Þeytið rjómann. Bræðið matarlímið í eitt augnablik í litlum potti og blandið svo saman við rjómaostsblönduna. Blandið því næst þeytta rjómanum saman við.
- Dreifið kreminu ofan á kexbotninn.
- Setjið kökuna inn í ísskáp, til að kremið nái að festa sig.
Kirsuberjagel
- Leggið þrjú matarlímsblöð í vatn í 5 mínútur.
- Hitið kirsuberjasósuna með 1 dl af vatni í potti.
- Setjð matarlímsblöðin í sósuna og látið bráðna. Leyfið sósunni að kólna örlítið og hellið þá yfir kalt ostakremið á kökunni. Setjið inn í kæli.
- Berið fram með söxuðum ristuðum möndlum og jafnvel síuðum flórsykri.
Uppskrift: Bobedre