Kjúklingur með fetaosti og döðlum

Þessi kjúklingaréttur er sérstaklega bragðgóður og mögulega sá einfaldasti sem þú munt elda, sem þýðir að þú munt elda hann aftur og aftur og aftur og ...

Kjúklingur með fetaosti og döðlum

  • 5 kjúklingabringur
  • 1 stór krukka rautt pestó
  • 1 krukka Dala-feta
  • 12 döðlur, smátt skornar
  • salt og nýmalaður pipar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Leggið kjúklingabringurnar í eldfast mót.
  3. Setjið pestó, smátt skornar döðlur og fetaost á hverja bringu.
  4. Kryddið bringurnar með salti og nýmöluðum pipar,
  5. Dreifið blöndunni yfir kjúklinginn og bakið í ofni við 180°C í 35-40 mínútur.
  6. Berið fram með ofnbökuðum sætum kartöflum og fersku salati.

Uppskrift: Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert